Umræðan: Birgir Dýrfjörð rafvirki skrifaði:
Það er ekki alveg rétt að æsa sig og ráðast á Jens Garðar vegna ummæla hans um afturhvaf Palestínubúa til rústanna sem eitt sinn voru heimili þeirra.
Jens Garðar er bara eins og hann er og getur ekki að því gert sjálfur.
Sennilega er hann afglapi eða hefur orðið fyrir þroskastöðvun sem táningur. (það er nokkuð þekkt frávik) Sé það svo er hæpið að gera hann ábyrgan orða sinna og bulli.
Það sem er verulega ámælisvert í máli Jens Garðars er; að virðuleg stjórnmálahreyfing hefur gert hann að varaformanni sínum og kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafa falið honum umboð sitt til að setja þjóðinni lög að lifa eftir.
Ummæli Jens Garðars eru viðhöfð í umboði Sjálfstæðisflokksins. Það er því hans að svara fyrir orð og gjörðir þingmannsins. Hann talar í þeirra umboði. Þeirra er ábyrgðin ekki afglapans.
Es: Mér finnst ekki rétt að gera Jens Garðar einan ábyrgan fyrir barnaskap hans.