- Advertisement -

Leikhúsin efla nýsköpun tækni og vísindi

Birgir Dýrfjörð skrifar:

Logi Már Einarsson, ráðherra nýsköpunar og tækni hefur kynnt viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um stækkun Þjóðleikhússins.

Að venju hefur kyrrstöðulið afturhaldsafla farið gegn þessu framfaramáli.

Fyrir nokkrum árum fóru sömu öflin gegn fjárstuðningi við Sinfóníuna.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég skrifaði þá grein. Ég ákvað að staðfæra þá grein til stuðnings leikhúsinu.         

Sauðkindur og mannkinndur

Hæfileikinn að skapa er sérgáfa mannsins og uppspretta allrar menningar.

Það sem mest skilur milli sauðkindarinnar og mannkindarinnar er hæfileiki mannsins að skapa,  að efnisbinda tilfinningar sínar og hugsanir.  

Uppeldisfræðingar fullyrða að besta aðferðin  til að þroska sköpunargáfuna, sem skilur milli manns og skepnu,  sé listiðkun og listneysla.

Það má vera þegar sauðkindin þraukar þorrann njóti hún minninga um gróna haga. Um það veit ég ekki, en aldrei getur hún deilt þeirri minningu til annarra.

Listaverk,  hvort sem eru skrifuð orð eða nótur á blað,  litir á fleti eða form í stein eða annað,  eru árangur af gáfu manna að geta efnisbundið hugarástand sitt og tilfinningar. Þau eru sköpun andans.

Beethoven gat ekki látið okkur  heyra hvernig tónarnir ómuðu í höfði hans.  En hann gat efnisbundið þá með bleki á blað og skapað listaverk, sem í aldir hafa nært mannsálina og aukið þroska hennar og eigin sköpunarmátt.

Oft getur listaverk eitt og sér komið til skila tilfinningu listamanns. 

Oft  þarf milligöngu annarra til að skynja hana.

Þjálfaðir flytjendur ljá textum og verkum skálda og tónskálda orku sína og tilfinningu og auðvelda þannig öðrum að njóta þeirra.

Mörg listaverk eru svo umfangsmikil að tugir flytjenda með margra ára nám, þurfa að æfa í mánaðavís til að flytja þau. T.d. sinfóníur, dansverk og stór leikverk.

Vegna alls þess umfangs, sem oft fylgir flutningi listaverka þarf að hafa  fagfólk í vinnu við að móta verkin til sýninga.

Það kallar á rétt húsrými til að veita almenningi aðgang til að njóta þeirra. 

Eðlishvöt

Sköpunargáfan er eðlishvöt. Horfum á börnin þegar þau fá kubba í hendur og byrja tilsagnalaust að setja þrjá eða fleiri hvern ofan á annan og hvað þau eru hreykin og glöð að hafa skapað eitthvað. Sköpunargleðin er slík að þau gera það margoft.

Skoðum heimili okkar hvernig við röðum, stillum upp og breytum, myndum, blómum og húsgögnum, hvernig við endursköpum umhverfi okkar, þá eru við að svala sköpunarþörf okkar, og skapa okkur skynsvið eftir eigin smekk.

Ég leyfi mér að hvetja alla, sem trúa á áhrif listarinnar til að efla nýsköpun, vísindi, menningu, tækni og fegurð í lífnu, að taka höndum saman og styðja viljayfirlýsingu Loga Más Einarssonar um Þjóðleikhúsið.

Höfundur er rafvirki.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: