- Advertisement -

Sauðkindin – listir og Mogginn

Birgir Dýrfjörð skrifar:

Vera kann þegar sauðkindin þreyir þorrann njóti hún minninga um gróna haga,  sól í heiði og svala vindsins. Um það veit ég ekkert, en hitt veit ég, að aldrei getur hún deilt þeim tilfinningum til annarra.

Beethoven gat ekki látið okkur  skynja hvernig tónarnir ómuðu í huga hans. 

Hann gat þó efnisbundið þá með bleki á blað og skapað listaverk, sem í aldir hafa nært mannssálina og aukið þroska hennar og sköpunarmátt.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það sem mest skilur milli sauðkindarinnar og mannkindarinnar er hæfileikinn að skapa. 

Listaverk hvort sem eru skrifuð orð eða nótur á blað,  litir á fleti eða form í stein,  eru árangur af viðleitni einstaklings að efnisbinda hugsun og tilfinningu. Það heitir sköpun.                                   

Það sem mest skilur milli sauðkindarinnar og mannkindarinnar er hæfileikinn að skapa. 

Sköpunargáfan er uppspretta allrar menningar og tækniafrek mannkyns.

Strax í bernsku sést að það er í eðli manna að skapa. Snjókallinn með gulrótarnefið.

Blómum skrýddar drullukökur og myndir og textar á blaði, og endalausar breytingar á uppröðun húsgagna og skrautmuna.   Allt eru það afleiðingar þess að efnisbinda hugsanir.

Þannig er listaverk, Það veldur skynjun sem vekur upplifun, sem við köllum list.

Dæmi: Hópur fólks horfir á listaverk og sumir segja; hvaða hryllingur er þetta?

Aðrir segja; mikið er þetta yndislega fallegt.

Þetta segir okkur að list er upplifun þeirra sem skynja, ekki síður en þeirra sem skapa.

Uppeldisfræðingar fullyrða að besta aðferðin  til að þjálfa og þroska sköpunargáfuna, sem skilur milli manns og skepnu,  sé listiðkun og listneysla.

Líklega er sköpunargáfan dýrmætasti eiginleiki Íslensku þjóðarinnar. Hámenntaðir hagfræðingar hafa sannað, að víðfræg listiðkun á Íslandi gefur af sér verðmæti sem mælast í ævintýralegum stærðum, á annað hundruð milljarða. Það jafngildir að selja eitt stykki Íslandsbanka á hverju ári – takk fyrir.  Ríkssjóði gagnast vel margt sem smærra er. 

Listafólk á Íslandi er því sjálfbær og gróðavænleg auðlind, sem gáfulegt er að rækta.

Þá er ótalið það sem aldrei verður metið til fjár. Áhrifin af  upplifun listarinnar.  Þau áhrif eru viðvarandi allsherjar heilun.  Þau örva sköpunargáfu og andlega getu Íslendinga. 

Vel meinandi ráðherra

Nú hefur Lilja kynnt áform sín um aukin listamannalaun. Það er góð fjárfesting.

Lilja Alfreðsdóttir hefur í mörgu reynst góður ráðherra.  Hún hefur beitt sér fyrir ýmsum tímabærum og farsælum framfaramálum.

Mörg verk hennar minna okkur á, að samvinnustefnan og jafnaðarstefnan eru sitt hvor greinin á einum og sama stofni félagshyggjunnar.

Nú hefur Lilja kynnt áform sín um aukin listamannalaun. Það er góð fjárfesting.

Sumt fólk er þó svo smátt, að það sér ekki út yfir röndina á tíkallinum sem því er snúið á.

Það er samgróið þeirri skaðlegu trú, að aldrei verði bókvitið í askana látið.  Nú hefur það fundið sálufélaga innan Sjálfstæðisflokksins. Þar safnast það í klíkur og hefur áhrif.

Í þessu máli ber að benda á skýr skil milli Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins.

Mogginn hefur alla sína tíð fjallað mikið um listir og verið þar dýrmæt fyrirmynd.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: