- Advertisement -

Matcha er stútfullt af andoxunarefnum – Smoothie

Matcha te smoothie

Matcha te er græntegund af tei sem kemur frá Japan. Ólíkt öðru tei er matcha ekki framleitt í soðnu vatni, heldur eru laufblöðin mulin niður í duft og þú hrærir það beint útí soðið vatn. Matcha te er stút full af andoxunarefnum. Rannsóknir hafa sýnt að matcha getur örvað efnaskiptin í líkamanum, komið í veg fyrir andfýlu og ákveðna sjúkdóma. Þessi smoothie er nærandi og ljúffengur. Einn skammtur af matcha getur komið í staðin fyrir kaffi, einn skammtur inniheldur 1/3 magn af koffíni, þannig þú getur náð þér í orku samhliða „kaffibollanum“

Matcha te smoothie

Fyrir 1

2 msk Matcha te

Þú gætir haft áhuga á þessum

300 ml kókósvatn

½ banani

½ avókadó

Ísmolar eftir smekk

Setjið lúkufyllir af ísmolum og síðan Matcha te, blandið vel. Síðan restina af hráefninu.

Blandið vel saman og njótið.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: