- Advertisement -

Ómar Ragnarsson lýsir hræðilegum veikindunum

Hinn ástsæli skemmtikraftur þjó´ðarinnar, Ómar Ragnarsson, opnar sig um erfið veikindin sem hann hefur glímt við síðustu tvo mánuði. Í aprílbyrjun veiktist hann af Covid og lagðist veiran þungt á Ómar.

Hann segir frá erfiðleikunm á bloggsíðu sinni og lýsir þar hræðilegum einkennunum. Til að skýra frá vísar Ómar í nýlega frásögn knattspyrnusnillingsins Leo Messi af baráttunni við kóronuveiruna.

„Lýsing Messi á einkennum kórónuveirunnar hljómar kunnuglega í eyrum þess, sem fengið hefur svipaða útgáfu af þessum fjanda í aprílbyrjun. 

Einkennin voru ansi snörp í byrjun með stóru verkjakasti sem þungamiðju, og voru verkirnir það miklir og í öllum líkamshlutum einn daginn, að hvorki var hægt að standa kyrr, liggja eða sitja, sofa eða vaka. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

En þetta ástand stóð tiltölulega stutt og við tók að veiran komst í lungun líkt og hjá Messi, og í kjölfar lungnabólgu sem nýtti sér áratuga gamla berkjubólgu, fylgdi viðeigandi lyfjameðferð og ströng fyrirmæli læknis um að leggja alveg af reglulegt vikulegt kapphlaup mitt á 30 sekúndum upp fjórar hæðir með skeiðklukkumælingu sem stundað hefur verið síðan 1960 til að viðhalda sæmilegu þreki, krafti og snerpu. 

Engan æsing, sagði læknirinn, vinna í hagum bata og taka nokkrar vikur í að forðast slíkt. 

Þegar blóðeitrun í hæl og ökkla fylgdi ótugtinni var enn meiri ástæða til að fara sér hægt. 

Nú hefur Messi lýst sínu afbrigði þannig, að hugsanlega verður hægt að tala um „Messi-afbrigðið af veirunni“ og fara í einu og öllu eftir skipunum læknis varðandi það að vinna í hægum bata, nokkuð sem Messi klikkaði á og gerði bara illt verra.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: