- Advertisement -

Verkalýðhreyfingin skoði þingframboð

Við þurfum að tryggja að auðlindin skili sér til samfélagsins. Að sjá hvernig kvótinn hefur verið fluttur á milli staða er óásættanlegt,“ sagði Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins og annar varaforseti Alþýðusambandsins, en hann var meðal fundargesta  á fjölmennum fundi þeirra Ögmundar Jónassonar og Gunnar Smára, í Þjóðmenningarhúsinu í dag.

Á og getur ASÍ gert eitthvað í málinu?

„Það er spurning hvað við getum gert og hvernig við getum beitt okkur í þessu. Við eigu alla vega  að hafa skoðun á málinu og reyna að tryggja að fólkið í landinu fái sinn hlut. Það er okkar hlutverk.“

Aðspurður um þingframboð á vegum verkalýðshreyfingar sagði Kristján Þórður óvíst hvað verður. Hann sagði þau hafa mikið afl.  „Við verðum að skoða hvort það geti nýst samfélaginu i heild.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: