- Advertisement -

Mun hjónaskilnuðum fjölga meðal Grindvíkinga?

Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka á móti gestum og ræða helstu fréttir og pólitík við gesti. Að þessi sinni koma Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna, Gudrun Margret Gudmundsdottir starfsmaður Alþýðusambandsins og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og ræða fordæmalausa stöðu. Ríkisstjórn með innanmein frammi fyrir risastórum verkefnum; hamförum, flóttafólki, kjarasamningum, húsnæðiskreppu, verðbólgu og efnahagslegri óvissu. Þeir bræður munu taka stöðuna á pólitíkinni en á eftir munu þeir fá til sín gesti til að ræða stöðuna í Grindavík út frá öðrum sjónarhornum en jarðfræðilegum og verkfræðilegum. Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur og íbúi í Grindavík, Sigrún Ólafsdóttir prófessor í félagsfræði og Þórólfur Matthíasson prófessor í hagfræði ræða Grindavík, samfélag í upplausn, stöðu fjölskyldna og getu og vilja ríkisvaldsins til að finna réttar lausnir og fylgja þeim eftir.

https://samstodin.is/clips/er-verklitil-rikisstjorn-ordin-thjodinni-of-dyrkeypt/

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: