- Advertisement -

Spornað gegn hefndarklámi

Voda­fo­ne og Þór­dís Elva Þor­valds­dótt­ir, rit­höf­und­ur, munu í sameiningu bjóða feldra­fé­lög­um grunn­skóla fræðslu um ábyrga hegðun í sta­f­ræn­um sam­skipt­um. Verkefnið ber nafnið Ber það sem eft­ir er: Um sext­ing, hefnd­arklám og netið.

Markmiðið er að vekja athygli á orsökum og afleiðingum myndbirtinga á netinu, sem geta haft mikil áhrif á líf og framtíð þeirra sem fyrir því verða. Upplýst samfélag er jú besta forvörnin. Fyrirlestraröðin verður frá 28. janúar 2015 og fram á vor. Aðgangur er ókeypis og allir foreldrar eru hvattir til að mæta og fá góð ráð um hvernig eigi að ræða þessi mál við börn og ungmenni.

Fræðslan er í höndum Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, höfundar verðlaunamyndanna „Fáðu já!“ og „Stattu með þér!“ sem notaðar eru í kennslu í grunnskólum landsins. Henni til aðstoðar er Sigríður Sigurjónsdóttir, MSc í sálfræði, sem hefur sérhæft sig á sviði kynferðisofbeldis gegn ungmennum og áhrif nettælingar á andlega heilsu brotaþola.

„Sext­ing (að skipt­ast á nekt­ar­mynd­um) meðal barna og ung­linga hef­ur aukið enn á vand­ann en per­sónu­leg mynd send vini get­ur auðveld­lega snú­ist upp í mar­tröð ef hún er mis­notuð. Það versta er að netið gleym­ir engu – það sem þangað fer verður ekki aft­ur tekið,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

„Fræðsla af þessu tagi er fagnaðarefni. Nauðsyn­legt er að auka vit­und­arstigið um af­leiðing­ar mynd­birt­inga á net­inu,“ er haft eft­ir Friðrik Smára Björg­vins­syni, yf­ir­lög­regluþjóni hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, í frétta­til­kynn­ingu.

Fyr­ir­lestr­arröðin hefst  í Sæ­mund­ar­skóla þann 28. janú­ar. Hún mun síðan fara á milli grunn­skóla á höfuðborg­ar­svæðinu, auk val­inna grunn­skóla á lands­byggðinni í fyrstu, fram á vor.

Hægt er að kynna sér efni fræðslunn­ar nán­ar og fylgj­ast með fram­vindu fyr­ir­lestr­araðar­inn­ar á vefsvæði Voda­fo­ne: www.voda­fo­ne.is.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: