- Advertisement -

NUDD OG NÖLDUR Á ALÞINGI

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifar:

Slegið var á að útgjöld næsta árs yrði ríflega milljarði kr. hærri en áætlunin gerði ráð fyrir, en þó svo upphæðin sé há þá er hún um 1/15 hluti af prósenti af áætluðum útgjöldum næsta árs.

Alþingi: „Það sem er áhugavert við málflutning stjórnmálamanns er alla jafna – fyrir hvaða málum hann er að beita sér, hver er framtíðarsýnin og hvernig á að ná henni fram.

Í gær var til umræðu á Alþingi sýn ríkisstjórnarinnar til næstu 5 ára sett fram með tölulegum hætti þ.e. hver áætluð gjöld verði eftir málaflokkum og sömuleiðis tekjur. Í stuttu máli felur stefnan í sér aðhald en bæta jafnframt innviði auk áherslna á heilbrigðis- og velferðarmál. Hver var síðan gagnrýni stjórnarandstöðunnar? Jú hún var fyrst og fremst hvort ætti að reikna út áætlunina út frá efnahagsspá sem kom út í maí frekar en í febrúar.

Umræddar spár koma út fjórum sinnum ár hvert en hvað sem því líður þá voru útreikningar á áætluninni í samræmi við upphaflega fyrirætlan. Einnig var gert mikið veður yfir hækkuðum fjárútlátum í atvinnuleysisbætur á næsta ári út frá því að niðurstaðan var að skerða atvinnuleysisbótarétt minna en upphaflega var gert var ráð fyrir.

Slegið var á að útgjöld næsta árs yrði ríflega milljarði kr. hærri en áætlunin gerði ráð fyrir, en þó svo upphæðin sé há þá er hún um 1/15 hluti af prósenti af áætluðum útgjöldum næsta árs. Mér hefði þótt betra að fá einhver ráð, sýn eða heilræði til þess að ná fram marmiðum um að ná fram jákvæðum rekstri ríkissjóðs, öðrum en að skerða kjör aldraðra og öryrkja en því miður virðast þingmenn Sjálfstæðis og Miðflokks vera með það á heilanum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: