- Advertisement -

ESB sýnir sitt rétta andlit

Ég var stödd á Bakka í gær í verksmiðju PCC, stóð í ískaldri og hljóðri verksmiðjunni sem var algerlega mannlaus og það var fullkomlega ömurlegt.

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Alþingi: „ESB hefur nú sýnt klærnar og sitt rétta andlit með því að staðfesta ákvörðun um verndartolla á kísilmálm þar sem Ísland og Noregur fá enga undanþágu. Hryllileg vonbrigði, segir forstjóri Elkem, Álfheiður Ágústsdóttir, í fréttum í dag,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir á Alþingi fyrr í dag.

„Forseti. Þetta snýst ekki bara um eina vöru eða eina atvinnugrein heldur snýst þetta um grundvallarspurningu: Er Ísland raunverulega hluti af innri markaði Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn eða ekki? Með þessari ákvörðun er Evrópusambandið að brjóta á Íslandi og Noregi, brjóta grundvallarreglu EES-samningsins um frjálst flæði vöru. Ég minni á að samningurinn gengur út á frjálst flæði vöru, þjónustu fólks og fjármagns og því spyr maður, virðulegur forseti: Hvað verður næst? Ég var stödd á Bakka í gær í verksmiðju PCC, stóð í ískaldri og hljóðri verksmiðjunni sem var algerlega mannlaus og það var fullkomlega ömurlegt. Ég hef alla tíð stutt EES-samninginn, mun gera það áfram og nú kalla ég eftir því að forsætisráðherra kalli saman formenn flokka á Alþingi til að fara yfir þessa stöðu og upplýsa þingheim um stöðuna.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: