- Advertisement -

“…getur ekki, má ekki og á ekki að njóta trausts þess sama Alþingis“

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir á Alþingi fyrr í dag:

Formenn flokkanna sem leggja fram vantrausttillögu á Jón Gunnarsson. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Þogerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland.

„Dómsmálaráðherra Íslands, Jón Gunnarsson, braut gegn þingsköpum þegar hann bannaði Útlendingastofnun að afhenda þinginu þau gögn sem þingið óskaði eftir á grundvelli 51. gr. þingskapalaga. Með þessu athæfi braut ráðherrann gegn einni af grunnstoðum þingræðisins á Íslandi. Hann braut gegn upplýsingarétti Alþingis Íslendinga. Það er grafalvarlegt brot gegn þinginu, brot sem þingið má ekki láta yfir sig ganga eins og ekkert hafi gerst. Réttur þingsins til að kalla eftir þeim upplýsingum sem það þarf til að sinna störfum sínum er bundinn í stjórnarskrá, hann er víðtækur og gríðarlega mikilvægur. Við erum lýðveldi með þingbundinni stjórn og það má ekki leyfa ráðherrum að taka sér það vald að velja hvaða upplýsingar þeim finnst þingið eiga rétt á að fá og hverjar ekki. Ef við samþykkjum það einu sinni erum við að setja fordæmi sem er ekki bara hættulegt heldur beinlínis andstætt stjórnskipun lýðveldisins Íslands.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þess vegna leggjum við, þingflokksformenn fjögurra flokka, fyrir hönd Pírata, Samfylkingarinnar, Flokks fólksins og Viðreisnar, til vantraust á hendur dómsmálaráðherra, Jóni Gunnarssyni, til að standa vörð um grundvallarstjórnskipan Íslands. Um það snýst þessi tillaga og ekkert annað. Hún snýst ekki um veitingu ríkisborgararéttar. Hún snýst ekki um Útlendingastofnun. Hún snýst ekki um útlendinga, hvað sem hver segir. Allra síst snýst hún um dylgjur dómsmálaráðherra í garð þingmanna allsherjar- og menntamálanefndar, sem er ein ógeðfelldasta afvegaleiðing sem ég hef orðið vitni að. Þessi tillaga snýst um það að ráðherra sem brýtur jafn freklega gegn upplýsingarétti almennings getur ekki, má ekki og á ekki að njóta trausts þess sama Alþingis.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: