Stjórnmál: Ari Edwald skrifar ósáttur með stöðuna:
„Í dag hefur verið kynntur nýr meirihluti í borgarstjórn, með aðild Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks, sem hlýtur að fela í sér að einhverjir skipta um stefnu STRAX eftir kosningar, þar sem áherslur voru mjög mismunandi.
Úrslit kosninganna réðust fyrst og fremst á þeim málum sem Miðflokkurinn setti fram af miklum krafti.
Við unnum stórsigur!
Við lögðum áherslu á að víkka út borgina með auknu framboði á hagkvæmu húsnæði og greiða borgarbúum leið í umferðinni. Stórbæta almenningssamgöngur, en hafna bruðli Borgarlínunnar sem eykur tafir og hækkar skatta borgarbúa.
Við unnum stórsigur! Okkar sigur var jafn stór sigri Sjálfstæðisflokksins í prósentustigum og borgarfulltrúum, og enginn flokkur vann hlutfallslega stærri sigur en Miðflokkurinn sem margfaldaði fylgi sitt.
Kjósendur veittu D og M hreinan meirihluta, 6 nýja borgarfulltrúa og skýrt umboð til langþráðra breytinga í borginni.
Sjálfstæðisflokkurinn kýs að hunsa það ákall kjósenda og efna til samstarfs við flokka sem bera ábyrgð á stefnunni sem var hafnað. Margir munu kalla það svik við kjósendur sem kusu breytingar.
Viðreisn lagði mesta áherslu á það fram á síðasta dag kosningabaráttunnar að ekkert mætti hrófla við Borgarlínunni, sem Sjálfstæðisflokkurinn sagðist vilja endurskoða frá grunni! Annað er eftir því.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur á undanförnum árum afsakað vinstri áherslur í landsmálum með því að þar hafi verið málamiðlanir við VG. Nú er því ekki lengur til að dreifa, en áfram kýs flokkurinn að starfa til vinstri þótt hann hafi sögulegt tækifæri til að framkvæma sína stefnu í samhentum tveggja flokka meirihluta með sömu áherslur í helstu málum.
Við í Miðflokknum munum að sjálfsögðu veita nýjum meirihluta uppbyggilegt aðhald í þágu borgarbúa í von um að málin geti þróast eins vel og hægt er, miðað við þær óvæntu aðstæður að kosningaúrslitin eru sniðgengin.
Ég vil að lokum þakka borgarbúum stuðninginn og traustið í nýafstöðnum kosningum sem og og öllu því góða og ötula fólki sem lagðist á árar með okkur í baráttunni fyrir betri Reykjavík.“