- Advertisement -

Er Miðflokkurinn sniðgenginn í pólitíkinni?

Stjórnmál: Björg Birgisson skrifaði þennan texta og vann skýringarmyndina sem fylgir:

„Er Miðflokkurinn sniðgenginn í pólitíkinni hérlendis? Heldur betur!

Aðeins ritari Sjálfstæðisflokksins, Vilhjálmur Árnason, vildi gefa fulltrúa Miðflokksins neitunarvald í Reykjanesbæ, til þess að tryggja að bæjarstjórastóllinn yrði sinn!

Aðrir oddvitar vildu ekkert með Miðflokkinn hafa, hann var ekki í formlegum viðræðum annars staðar um myndun meirihluta.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hvað veldur? Augljóslega þetta venjulega. Sambland af stefnunni og mannskapnum sem ber hana fram eða leitast við að fela hana með afneitun á ýmssu, með réttu eða röngu.

Frá stofnun Miðflokksins hefur hann aldrei komið til greina í ríkisstjórn og aðeins átt einn fulltrúa í meirihluta á Akureyri og í Árborg af stærri bæjum landsins

Það er nú allt og sumt. Taflan sýnir stöðu flokksins hvað varðar þessar meirihlutamyndanir eftir kosningarnar á dögunum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: