- Advertisement -

Miðflokkurinn vill ekki Írisi sem bæjarstjóra

Vestmannaeyjar: Miðflokkurinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja sættist ekki á endurráðningu Írísar Róbertsdóttir. Aðallega er fundið að tvennu. Í fyrsta lagi þykir Miðflokksfólki þar að Íris hafi ekki staði sig sérlega vel sem bæjarstjóri síðastliðin átta ár. Eins er fundið að launum hennar sem með öllu er nokkuð á þriðju milljón á mánuði.

Hér er bókun frá bæjarstjórnarfundi:

Að mati bæjarfulltrúa Miðflokksins er nú tímabært að ráðast í breytingar, ekki aðeins í skipan bæjarstjórnar heldur einnig í embætti bæjarstjóra. Undanfarið hafa komið fram fréttir af slæmum starfsanda og framkomu gagnvart starfsfólki. Þær upplýsingar falla að þeim áhyggjum og þeim orðrómi sem heyrst hefur um þó nokkurt skeið. Við teljum því ekki rétt að halda áfram á sömu braut. Við teljum að sveitarfélagið þurfi nýja forystu sem getur byggt upp traust, eflt samstarf og skapað jákvætt starfsumhverfi til framtíðar. Af þeim sökum getum við ekki stutt ráðningu bæjarstjóraefnis Sjálfstæðisflokksins og leggjum þess í stað til að Trausti Hjaltason verði ráðinn bæjarstjóri.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: