- Advertisement -

Viðreisn ræður framhaldinu

Kosningar: Gunnar Smári reiknaði og skrifaði:

„Þetta er svolítið járn í járn. Hægra megin er Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn með 10 fulltrúa (43,2%). Talið frá vinstri er Vinstrið, Samfylking, Píratar og Flokkur fólksins með 10 fulltrúa (43,2% ef fylgi Sósíalista er talið með). Viðreisn er svo á milli með 3 fulltrúa, en samkvæmt könnun Maskínu vilja kjósendur flokksins frekar að hann vinni til vinstri en hægri. Ef forystan fer eftir því má segja að mið-vinstri meirihluti sé líklegri en hægri meirihluti ef þetta yrði niðurstaðan.

Fulltrúar Pírata og Flokks fólksins hanga inni á bláþræði. Reynslan sýnir að Píratar fá mun minna upp úr kjörkössum en í könnunum. 4,2% fylgi nú er því alls ekki ávísun á öruggan fulltrúa. Reynslan er önnur hjá Flokki fólksins. Sá flokkur hefur oftast fengið fleiri atkvæði en skoðanakannanir benda til. Þótt vikmörk á fylgi Flokks fólksins séu þannig að þessi könnun segi að það séu næstum 50/50 hvort Guðmundur Ingi nái inn þá er sagan frekar með honum en á móti Kristni Pírata. Þetta er slæm könnun fyrir Sósíalistaflokkinn. Sá flokkur þyrfti að mælast öruggur inni í könnunum í kosningavikunni ef mögulegir kjósendur hans fælist ekki frá af ótta við að atkvæðið falli dautt.“

Fyrirsögnin er Miðjunnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: