- Advertisement -

Milliverðlagningin hefur ekki enn komið til skoðunar


…heldur er munur á því sem greitt er til erlendra skipa og íslenskra sem landa loðnu á Íslandi.

Sigurjón Þórðarson.

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

Það er ekki aðeins að það sé margfaldur munur á því verði sem greitt er fyrir loðnuna í Færeyjum og á Íslandi heldur er munur á því sem greitt er til erlendra skipa og íslenskra sem landa loðnu á Íslandi.


„Það var áhugavert minnisblað sem barst frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu til fjárlaganefndar um mögulega milliverðlagningu á loðnu. Það er skemmst frá því að segja að milliverðlagsteymi Skattsins hefur ekki enn hafið skoðun á málinu.

Það er ekki aðeins að það sé margfaldur munur á því verði sem greitt er fyrir loðnuna í Færeyjum og á Íslandi heldur er munur á því sem greitt er til erlendra skipa og íslenskra sem landa loðnu á Íslandi.

Það er allra hagur að það sé gagnsæi hvað varðar verðlagningu á útflutningsafurð þjóðarinnar. Það er engin vestræn þjóð sem sættir sig við að rökstuddur efi sé uppi um að einhver leikaraskapur sé í gangi hvað varðar uppgjör á nýtingu sameiginlegra náttúruauðlinda.

Það er mitt mat að um sé að ræða svo mikla hagsmuni að málið ætti að vera í forgangi.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: