„Og hér er því haldið fram að við séum 75–80% í Evrópusambandinu. Allt tóm þvæla.“
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Alþingi: „Ég er hér kominn til að tala um ógn í tengslum við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem eru falsfréttir. Hér koma hæstvirtir ráðherrar og stjórnarliðar og miskunnarlaust dreifa falsfréttum,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson á Alþingi.

„Evrópusambandið gengur út á það að við tökum völd sem við eigum og höfum fengið og færum þau til Brussel. Við tökum fjármuni sem eru hér á Íslandi sem eru notaðir í samgöngur, heilbrigðismál og ýmislegt annað og færum til Brussel. Sérhagsmunirnir eru skýrir og ég hvet alla til að skoða launakjör, skattaumhverfi og lífeyrisréttindi starfsmanna ESB í Brussel og annars staðar. Hér hefur því verið skrökvað af hálfu ráðherra að ESB-rétturinn muni ekki gilda ef við göngum inn. Hann mun gilda. Það þýðir að það er sama hvaða lög við samþykkjum hér; ef við förum inn þá víkja þau ef þau eru ekki í samræmi við lög ESB.
Það er alveg með ólíkindum, virðulegi forseti, og grafalvarlegt þegar hæstvirt ríkisstjórn og stjórnarliðar viljandi og vitandi vits, á samfélagsmiðlum og annars staðar, dreifa falsfréttum. Ég segi við þá: Þið eruð ekki í neinni stöðu til þess að gagnrýna erlenda aðila sem dreifa falsfréttum vegna þess að þið gangið fremst á meðal jafningja og þegar talað er um sérhagsmuni, lítið ykkur nær.“