- Advertisement -

Sjálfstæðisflokkurinn vill kannski ekki gera neitt

Alþingi: „Ég vil þakka háttvirtum þingmanni Jón Pétri Zimsen fyrir fyrirspurnina. Ég ætla bara að svara því skýrt og skorinort: Við erum að fara af stað að bæta framhaldsskólakerfið. Við erum að fara af stað með þá stefnu að gera gott skólakerfi mun betra,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, þegar hann var menntamálaraðherra. Hér má lesa spurningu Jóns Péturs Zimsen Sjálfstæðisflokki.

Áfram með þáverandi menntamálaráðherra, Guðmund Inga Kristinsson:

„Við erum líka að fara af stað að gera gæði náms jafn góð hvort sem það er á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni. Það er krafa um það þegar nemendur eru á leiðinni í háskóla, hvort sem þau koma frá Húsavík eða úr Kópavogi eða Reykjavík, að gæði námsins sem þau eru að fá og einkunnir séu jafn góðar frá hvorum staðnum sem þau koma. Því miður er það staðreynd í dag að það er ekki. Við erum að fara í samtal, við erum ekki að segja nákvæmlega hvað, hver — svo er líka alveg á hreinu að hver einasti skóli mun halda sínu sérkenni, mun halda sínum gæðum, það starfsfólk sem er í skólunum verður áfram í skólunum, sama hvaða nafni þau nefnast.

Við erum ekki að taka eitt né neitt frá neinum skóla heldur er hugsunin að bæta þá skóla og hjálpa þeim skólum sem þurfa þess, eins og skólum úti á landi. Við erum að sjá að það eru skólar sem voru kannski með 70%, 75% nemenda úr sínu nærumhverfi en eru komnir niður í 50% og eru að fara undir 50%. Það hlýtur að segja okkur að það er eitthvað sem við þurfum að gera. Sjálfstæðisflokkurinn vill kannski ekki gera neitt. Framsóknarflokkurinn vildi sameina. Við viljum fara í samtal og finna nákvæmlega út hvað hentar hverjum skóla best og styrkja stoðir hvers skóla.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: