- Advertisement -

Landeyjahöfn eða Sandeyjahöfn?

„Bið eftir þeim tillögum, frú forseti, hefur verið ansi löng því að þingsályktunartillaga þess efnis var samþykkt 2019 eða fyrir sjö árum síðan.“

Karl Gauti Hjaltason.

Alþingi: „Ég ætla að ræða samgöngumál Vestmannaeyja þar sem búa nálægt 5.000 manns. Undanfarna mánuði hefur verið alger og óþolandi óvissa með samgöngur við byggðina í Vestmannaeyjum. Farþegaferjan Herjólfur hefur um langt skeið meira og minna þurft að sigla til Þorlákshafnar þar sem dýpi í Landeyjahöfn hefur ekki reynst nægilegt fyrir skipið,“ sagði Karl Gauti Hjaltason Miðflokki á Alþingi.

„Hvað varðar Landeyjahöfn hefur ekki verið siglt þangað heilan áætlunardag síðan 16. janúar síðastliðinn og það hefur ekki verið ein einasta ferð farin þangað á tímabilinu 20. febrúar til 4. apríl, ekki ein einasta ferð í Landeyjahöfn. Það hefur einungis verið siglt átta heila daga í Landeyjahöfn frá áramótum. Þetta er staðan í Landeyjahöfn. Þessi vetur hefur verið einn sá alversti hvað varðar samgöngur við Vestmannaeyjar um langt árabil. Það þarf ekki að horfa nema tvo áratugi aftur í tímann þegar samgöngurnar voru jafnvel betri vegna þess að þá voru þó mjög öflugar flugsamgöngur til Vestmannaeyja.

Hvað þarf að gera, frú forseti, og hvað þarf að laga? Í fyrsta lagi er ekki búið að klára Landeyjahöfn þar sem hún safnar að sér meiri sandi en gert var ráð fyrir og er nú beðið eftir tillögum að endurbótum svo sandburður minnki. Bið eftir þeim tillögum, frú forseti, hefur verið ansi löng því að þingsályktunartillaga þess efnis var samþykkt 2019 eða fyrir sjö árum síðan. Í öðru lagi er brýn þörf á öflugri tækjum og skipum til sanddælingar sem geta starfað í meiri ölduhæð en nú er hægt. Í þriðja lagi þarf ríkisvaldið að stórefla flug til Eyja yfir vetrarmánuðina og bjóða íbúum að geta ferðast samdægurs fram og til baka, t.d. fyrir þá sem þurfa að leita sér lækninga í Reykjavík. Eins og útlitið er nú er það ekki björgulegt. Miklar grynningar eru við höfnina og dýpkunarskipið á erfitt með að athafna sig. Og ekki nóg með það, frú forseti, Herjólfur siglir nú til Þorlákshafnar á annarri skrúfunni og þarf að fara til viðgerðar sem tekur eflaust eina viku.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: