- Advertisement -

Alls staðar skortur á leiguíbúðum

Leiguíbúðum sveitarfélaga fjölgaði lítillega á síðasta ári, eða um 1,2% frá fyrra ári. Alls eru íbúðirnar um 4900. Um 40 sveitarfélög telja sig búa við skort á leiguíbúðum en sex eru með áform um fjölgun þeirra. Um 70% umsóknanna eru um leiguíbúðir á höfuðborgarsvæðinu og um 80% þeirra sem eru á biðlista eftir félagslegri leiguíbúð búa á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta kemur fram í niðurstöðum árlegrar könnunar Varasjóðs húsnæðismála um leiguíbúðir í eigu sveitarfélaga um land allt.

Vandi sveitarfélaga vegna íbúða sem standa auðar um lengri tíma virðist heyra sögunni til en áður var þetta töluvert vandamál, einkum á Vestfjörðum. Rekstrarvandi sveitarfélaga vegna leiguíbúða fer minnkandi. Árið 2011 glímdi 31 sveitarfélag við rekstrarvanda vegna leiguíbúða samkvæmt svörum við könnun Varasjóðs húsnæðismála en hefur fækkað niður í 25 sveitarfélög.

Þeim sveitarfélögum sem telja sig búa við skort á leiguhúsnæði hefur fjölgað. Þegar fyrst var spurt um þetta atriði árið 2009 töldu 23 þeirra svo vera en 40 árið 2013. Aðeins sex sveitarfélög hafa þó á prjónunum að fjölga í náinni framtíð leiguíbúðum sínum, samtals um 286 íbúðir. Mest munar um áform Félagsbústaða hf. í Reykjavík um að byggja 200 íbúðir og festa kaup á 20 íbúðum. Þrjú stór sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Kópavogur, Hafnarfjarðarkaupstaður og Mosfellsbær áforma að fjölga leigubúðum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Að þessu sinni var í fyrsta sinn spurt um það hversu margar umsóknir um félagslegt leiguhúsnæði hefðu borist sveitarfélaginu á árinu 2013 og einnig hve margir umsækjendur hefðu verið á biðlista þess eftir félagslegu leiguhúsnæði við lok þess árs. Fjöldi fólks sem sótt hefur um félagslega leiguíbúð er langmestur í Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum. Sama á við fjölda þeirra sem eru á biðlista eftir félagslegri leiguíbúð. Um 70% umsóknanna eru um leiguíbúðir á höfuðborgarsvæðinu og um 80% þeirra sem eru á biðlista eftir félagslegri leiguíbúð búa á höfuðborgarsvæðinu.

Könnun Varasjóðs húsnæðismála 2013

http://www.velferdarraduneyti.is/frettir-vel/nr/34931

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: