- Advertisement -

Arctic Oddi hættir vinnslu á hefðbundnum sjávarafla

Arctic Oddi hyggst hætta vinnslu á á hefðbundnum sjávarafla og einbeita sér alfarið að eldisafurðum. Leitað er eftir kaupendum eða samstarfsaðilum vegna bolfiskvinnslu félagsins á Flateyri.  Kom þetta fram á starfsmannafundi Arctic Odda á Flateyri í dag.

Fyrirtækið hefur á undanförnum árum byggt upp sérhæfða eldisvinnslu í samstarfi við systurfélag sitt, Dýrfisk. Dýrfiskur hefur í dag leyfi til þess að ala allt að tvö þúsund tonn af regnbogasilungi og laxi í Dýrafirði en hægt hefur gengið að fá aukningu eldisleyfa sem forsenda þess að byggja þar upp arðbæran rekstur.

Samhliða árstíðabundinni vinnslu á eldisfiski hefur Arctic Oddi haldið út heilsársstarfsemi undanfarin þrjú ár með vinnslu á þorski, steinbít, makríl og fleiri sjávarafurðum. Starfsmenn hafa verið um þrjátíu. Sú vinnsla hefur hingað til verið rekin með tapi og því hefur verið tekin ákvörðun um að hætta vinnslu á hefðbundnum sjávarafla.

Eldisferlið sjálft frá klaki til fullvinnslu afurða er hátt í þrjú ár og því er mikilvægt að uppbygging og staðfesting eldisleyfa haldist í hendur svo hægt sé að tryggja atvinnuöryggi og uppbyggingu starfseminnar. Arctic Oddi mun því aðeins halda eftir kjarnastarfseminni sem er vinnsla á eldisafurðum. Verður sú framleiðsla árstíðabundin á meðan verið er að byggja upp og tryggja frekari eldisleyfi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: