- Advertisement -

Ársgamall drengur lét lífið eftir hrottalega árás

Maður réðst á ársgamla tvíbura með hamri á hrottafenginn hátt en talið er að maðurinn sé faðir barnanna.

Síðastliðinn laugardag átti sér stað hörmulegur atburður í London er ársgamlir tvíburar urðu fyrir hrottalegri árás af hendi manns vopnuðum hamri. Talið er að árásarmaðurinn sé faðir barnanna en árásin átti sér stað þegar móðir þeirra var lokuð inni á baði, líklegast í sturtu en eitthvað virðist vera á reiki hvort hún hafi verið læst þar inni eða hvort hún hafi farið þangað inn sjálfviljug. Samkvæmt upplýsingum sem nágrannar fólksins hafa gefið upp eru þau ekki Bresk og virðast ekki hafa þekkt nágranna sína þó svo að þau virðast hafa búið í íbúðinni í nokkurn tíma.

Eftir að hafa uppgötvað börnin Gabriel og Maria, stórslösuð í íbúðinni hljóp Cristinela Datcu, móðir barnanna, út á götu í mikilli geðshræringu sem yfirtók hana, eins og gefur að skilja, og kallaði hún hún síendurtekið „My kids, my kids“ eða „börnin mín, börnin mín“.

Bidhya Sagar Das, 33 ára, sem talinn er vera faðir barnanna hefur verið handtekinn eftir að hafa verið á flótta í um í 20 klukkustundir. Lögreglan hefur staðfest það að hann liggi undir grun um morð og morðtilraun.

Vitni sögðu frá því hvernig hin skelfda móðir hljóp um göturnar öskrandi eftir að hafa uppgötvað börnin sín liggjandi í blóði sínu í íbúðinni. Eftir að viðbragðsaðilar voru komnir á staðinn sáust börnin borin út í sjúkrabílinn og þeim ekið á sjúkrahús en Gabriel litli lét lífið og systir hans berst nú fyrir lífi sínu.

Haft var eftir vitnum sem heyrðu öskrin:

„Ég leit út og sá veslings konuna og vissi strax að eitthvað skelfilegt hafði komið fyrir“

„Þegar lögreglan kom var konan öskrandi að þeim: Börnin mín, börnin mín, af hverju voruð þið svona lengi á leiðinni?“

„Þegar börnin voru borin út heyrði ég annað þeirra gráta“

„Lögreglubílar voru keyrandi fram og aftur í götunni og á endanum fór konan með þeim“

 

Íbúi á neðri hæð hússins þar sem atburðurinn átti sér stað sagði vin sinn hafa farið upp í íbúð fjölskyldunnar og hafi þá séð börnin liggjandi á gólfinu og greinilegt hafi verið að drengurinn hafi verið sleginn með hamri í höfuðið og stúlkan hafi einnig verið slösuð. Maðurinn tók drenginn upp og hélt á honum er hann tók síðustu andardrættina.

 

Tæknideild lögreglunnar sást síðar vera að taka myndir af appelsínugulum og svörtum hamri sem þeir fundu í stórum iðnaðarpoka fullum af sandi sem staðsettur var rétt hjá húsinu sem fjölskyldan bjó.

Haft var eftir Dave Whellams rannsóknarlögreglumanni í morð- og stórglæpadeild lögreglunnar „Þetta er skelfilegt atvik og er hugur okkar hjá fjölskyldu barnanna tveggja. Þrátt fyrir að læknar gerðu sitt allra besta lét litli drengurinn lífið og er stúlkan mikið slösuð en ástand hennar er tvísýnt. Þó svo rannsókn málsins sé stutt á veg komin höfum við hneppt mann í varðhald en ef einhver hefur upplýsingar sem gætu gagnast við rannsóknina biðjum við sá hinn sama um að hafa samband við lögregluna“

Lögreglan var lengi við vinnu sína við húsið og mátti sjá marga aðila fara inn og út úr húsinu eftir atvikið. Nánustu ættingjar fjölskyldunnar hafa verið látin vita og mun rannsókn málsins halda áfram.

Metropolitan Police gaf út yfirlýsingu vegna málsins: „Nánustu ættingjum fjölskyldunnar hefur verið tilkynnt um atburðinn. Eftir á að bera formleg kennsl á börnin og einnig verður gerð krufning á þeim látna. Rannsókn málsins verður haldið áfram til að gefa nákvæma mynd af því sem gerðist“.