- Advertisement -

Bellibrögð og barbabrellur

Nú skal herjað á ríkisstjórnina og skal þá ráðist með öllum tiltækum ráðum á Flokk fólksins og öll hans mál á Alþingi rægð niður í svaðið.

Heimir Már Pétursson.

Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins, skrifar:

Þegar kemur að undirróðri og valkvæðum staðreyndum, svo ekki sé nú talað um hálfsannleik og hvað þá hreint skrök, er fátt nýtt undir sólinni.

Á kaldastríðsárunum þegar Vesturlönd vildu ekki styggja einræðisstjórn kommúnista í Moskvu of mikið var Albanía, eitt minnsta ríki austurblokkarinnar, skömmuð. Allir vissu þó hvern var verið að skamma.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…urðu hrein valdaskipti á Íslandi…

Nútímaáróðursfræði, upplýsingaóreiða og undirróður byggja á því sem áður hefur verið gert. Göbbels, áróðursmálaráðherra Þriðja ríkisins, fullkomnaði aðferðafræðina. Hann sagði mikilvægt að allri gagnrýni væri ávallt beint að einum óvini til að halda fólki við efnið. Það væri ekki líklegt til hylli hjá almenningi að fara út í flóknar skýringar á því að ástandið í þjóðfélaginu eða heimsmálunum væri eins og það var. Almenningur missti fljótt þráðinn og áhugann.

Þess vegna beindist allur megináróður Göbbels og nasistaklíkunnar að gyðingum. Þeir hefðu tekið yfir bankana, listir og menningu, allt viðskiptalífið og blóðmjólkað saklausan almenning. Meira að segja dugði ekki að tala um kommúnistana í Sovét, heldur var stefna valdaklíkunnar í Moskvu kölluð „gyðlinglegi bolsévisminn“.

Í síðustu alþingiskosningum urðu hrein valdaskipti á Íslandi í þeim skilningi að hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Framsóknarflokkurinn, elstu flokkar Íslands, sitja nú í ríkisstjórn. Báðir flokkarnir hlutu verstu útkomu í kosningum í gervallri sögu sinni. Þrír af þeim flokkum sem höfðu verið í stjórnarandstöðu frá 2017 eða lengur unnu ríflegan meirihluta á Alþingi og mynduðu núverandi ríkisstjórn.

Í stað þess að líta í eigin barm þrammar forysta Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks nú troðnar slóðir. Óvinurinn eini og mikli er Evrópusambandið. Öll frumvörp, þingsályktanir og reglugerðir, fundir ráðherra innanlands og utan eru allt eitt allsherjarsamsæri um að skjóta Íslandi inn í Evrópusambandið án þess að fávís almenningur fatti það.

…marga tónleika hjá Grátkór sérhagsmunanna…

Gömlu valdaflokkarnir tveir vita hins vegar að kjörtímabilið er fjögur ár og aftur verður boðað til kosninga. Þess vegna má ekki skjóta of föstum skotum á alla stjórnarflokkana. Tveir þeirra gætu orðið nauðsynlegir í samstarf.

Og þá mundu menn eftir Albaníubrellunni: Nú skal herjað á ríkisstjórnina og skal þá ráðist með öllum tiltækum ráðum á Flokk fólksins og öll hans mál á Alþingi rægð niður í svaðið. Billeg og gömul barbabrella sem stjórnarflokkarnir og forystukonur þeirra láta ekki á sig fá. Halda bara skörulega áfram að gera nauðsynlegar breytingar öllum almenningi í hag. En það hefur óneitanlega kallað á marga tónleika hjá Grátkór sérhagsmunanna eins og alþjóð hefur orðið vitni að, við dræmar undirtektir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: