- Advertisement -

Laun borgarstjóra: „Þvílík sturlun“

„Pólitísk yfirstétt fer á undan með ömurlegu fordæmi og skammtar sér milljónir eins og ekkert sé.“

Umræðan/Facebook: Sólveig Anna Jónsdóttir skrifaði:

„Þvílík sturlun. Svo þegar þetta fólk lætur af embætti þykist það aldrei hafa tekið sér frí, voðalegur bömmer, og fær því með sér sem kveðjugjöf orlofsgreiðslur upp á margar milljónir eins og ekkert sé. Svo er fólk undrandi á því að ekkert gangi að hemja launaskrið og ná niður verðbólgu – pólitísk yfirstétt fer á undan með ömurlegu fordæmi og skammtar sér milljónir eins og ekkert sé á meðan hún ræður ekki einu sinni við að tryggja sómasamlega grunnþjónustu – hvaða hvata hefur þessi yfirstétt til þess að sýna ráðdeild – bókstaflega enga, fær að komast upp með hvað sem er – enda á ráðdeildin aðeins að vera hjá láglaunafólkinu sem starfar í fjársveltum umönnunarkerfunum sem enginn þykist bera ábyrgð á.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: