- Advertisement -

Daði Freyr vill breyta Eurovision: „Þetta er bara ekki eins á­huga­vert“

Daði Freyr Pétursson, tónlistarmaður og tvívegis fullt´rúi Íslands í Euroviosn, segir kominn tíma á breytingar á söngvakeppninni. Hann vill hætta að leyfa að bakraddir atriða séu taknar upp og spilaðar síðan með lögunum í Eurovision.

Þessar breytingar voru leyfðar í fyrsta sinn í fyrra og virðist Daði Freyr ekki hrifinn af breytingunni. „Þetta er bara ekki eins á­huga­vert. Ég vil vita að allar raddir séu í beinni, en kannski er það bara ég,“ segir hann.

Á­stæðan fyrir breytingunum í fyrra var Covid-19 heims­far­aldurinn. Markmiðið var að gera löndum auð­veldara fyrir og spara þeim pening.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: