- Advertisement -

Afsökunarbeiðni Gísla Marteins: „Ég var að vanda mig en vissi bara ekki betur“

Eins og oft áður fór Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður algjörlega á kostum í lýsingu sinni á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision í gærkvöldi. Honum urðu þó á ákveðin mistök í lýsingu sinni í gærkvöldi þegar hann talaði um kynsegin þátttakanda í keppninni.

Gísli Marteinn var fljótur að bregðast við og baðst hann afsökunar á þessu í morgun. „Afsakið þetta. Ég var að vanda mig en vissi bara ekki betur. Takk fyrir að leiðrétta mig,“ segir Gísli.

Sjá einnig: Siggi Gunnars spáir þessum þjóðum áfram – Magga Frikka hundsvekkt

Vakin var athygli á mistökunum á Twitter þar sem viðkomandi sagði:

„Smá hinsegin fróðleikur. Fólk „skilgreinir sig“ ekki sem kynsegin, fólk er kynsegin.“

Systkinin Elín, Beta, Sigga og Eyþór Eyþórsbörn voru í skýjunum eftir að þau komst áfram í úrslitin sem fram fara á laugardagskvöldið. Mikil spenna ríkti í höllinni á meðan tilkynnt var hvaða atriði myndu komast áfram en Ísland var þriðja ríkið til að verða lesið upp í útsendingunni.  Auk Íslands komust Sviss, Armenía, Litháen, Portúgal, Noregur, Grikkland, Úkraína, Moldavía og Holland áfram í lokakeppnina á laugardag.

Sjá einnig: „Okkur líður mjög vel, þetta var mjög gaman“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: