- Advertisement -

Fiskiskipum fækkar

Fiskiskipum fækkaði um ellefu á síðasta ári og voru þau undir lok ársins 1685. Vélskip voru 773 og fækkaði um 10 á milli ára, togarar voru 49 og fækkaði um 2. Opnir fiskibátar voru 863 og fjölgaði um einn milli ára. Flest fiskiskip voru með skráða heimahöfn á Vestfjörðum í lok árs 2014, alls 400, sem eru tæp 24% fiskiskipaflotans. Fæst voru þau á Suðurlandi, eða 72. Íslenski fiskiskipaflotinn yngdist upp um 20 mánuði að meðaltali á milli árana 2013 og 2014, en meðalaldur fiskiskipa var um 25,8 ár í árslok 2014.

Næst flest, alls 323 skip höfðu heimahöfn skráða á Vesturlandi eða 19,2%. Fæst skip voru með skráða heimahöfn á Suðurlandi, 72 alls, en það samsvarar 4,2% af heildarfjölda fiskiskipa. Opnir bátar voru flestir á Vestfjörðum, 234, og á Vesturlandi 181. Fæstir opnir bátar höfðu heimahöfn á Suðurlandi, alls 19. Vélskip voru einnig flest á Vestfjörðum, 160, en fæst á Suðurlandi, 45 skip. Flestir togarar höfðu skráða heimahöfn á höfuðborgarsvæðinu, alls 10, en níu togarar á Norðurlandi eystra. Fæstir togarar voru skráðir á Vesturlandi, alls þrír.

Íslenski fiskiskipaflotinn yngdist upp um 20 mánuði að meðaltali á milli árana 2013 og 2014, en meðalaldur fiskiskipa var um 25,8 ár í árslok 2014. Meðalaldur vélskipa var tæp 24 ár, togaraflotans rúm 29 ár og opinna fiskibáta rúm 27 ár.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: