- Advertisement -

Fleiri greinast með sárasótt

Alls hafa 17 karlar greinst með sárasótt (sýfilis) á Íslandi á árinu en engin kona. Flestir karlanna, þ.e. 15 af 17, höfðu stundað kynlíf með körlum.

Á vef Landlæknis kemur fram að þetta sé meira en þreföld aukning miðað við fyrri ár því að síðastliðin ár hafa árlega greinst 2–5 einstaklingar með sárasótt. Uppruni sýkinga á undanförnum árum hefur yfirleitt  verið erlendur, en sýkingarnar í ár eru flestar af innlendum toga.

Sýkingahrinur af völdum sárasóttar og annarra kynsjúkdóma eru vel þekktar meðal karla sem stunda kynlíf með körlum í öðrum löndum, einkum í stórborgum, en sýkingarnar hafa einnig dreifst út til gagnkynhneigðra einstaklinga.

Sóttvarnalæknir vill einnig vekja athygli á því að árlega greinast flest tilfelli af klamydíu á Íslandi miðað við önnur lönd Evrópu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er því full ástæða til að minna á ábyrgð hvers og eins að verja sjálfan sig og aðra gegn sjúkdómum sem smitast við kynmök.

Nánari upplýsingar um sárasótt er hægt að nálgast á http://www.landlaeknir.is/smit-og-sottvarnir/smitsjukdomar/sjukdomur/item13101/Sarasott

Sjá frétt á vef Landlæknis

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: