- Advertisement -

Flokkur pólitískra púðurskota lítur til fortíðar eftir nýrri framtíð

Frasar um frasastjórnmál og slagorðapólitík.

Stjórnmál Þórður Snær Júlíusson skrifar nokkuð um Sjálfstæðisflokkinn á Kjarnyrt. Hér fer góður hluti skrifanna:

Helsti valdaflokkur Íslandssögunnar er í vanda. Fylgið er eitt það minnsta sem hann hefur nokkru sinni mælst með og annar flokkur, hægra megin við, er að sjúga til sín þjóðernislegt íhaldsfylgi mánuði til mánaðar. Einungis rétt tæplega þriðjungur flokksmanna segir nýjan flokksformann hafa staðið sig vel og sama hlutfall þeirra telur hana raunar hafa staðið sig illa. Til að bregðast við þessari krísu blés Sjálfstæðisflokkurinn til ásýndarfundar. Þar kom fram að fortíðin er nýja ásýndin hjá flokki sem vill helst bara standa kyrr.

Í þeirri krísu boðaði Sjálfstæðisflokkurinn fund um síðustu helgi sem átti að hafa þann tilgang að kynna nýja ásýnd. Innvolsið átti að vera niðurstaða hringferðar forystunnar um landið þar sem tekin hefðu verið um borð skilaboð flokksfólks um hvað það vildi á pólitíska diskinn sinn. 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Úr varð furðuverk. „Engin ástæða til að breyta neinu“

Fundurinn hófst á því að fyrrverandi varaformaður flokksins, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, hélt upphitunarræðu fyrir nýja forystu sem var bæði mun betur flutt og með meira innihaldi en aðalrétturinn. Pólitísk söngrödd hennar á mun meira erindi en það sem forystuhljómsveitin hafði upp á að bjóða. 

Ræða Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokks, skildi nefnilega þá sem á hlýddu, og vonuðust eftir hugmyndafræðilega skýrri stefnumörkun hjá Sjálfstæðisflokknum á viðburðinum, eftir með mun fleiri spurningar en svör. 

Vísir náði að kjarna ræðu Guðrúnar á viðburðinum þannig að litlu var við að bæta. Í frétt miðilsins, sem bar fyrirsögnina „Engin ástæða til að breyta neinu“ sagði: „Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að halla sér frekar til hægri eða vinstri til að bregðast við auknu fylgistapi að sögn formanns flokksins sem kynnti nýja ásýnd á sérstökum fundi í dag. Engar breytingar voru boðaðar á stefnu flokksins sem lítur til fortíðar.“

Frasar um frasastjórnmál

Ræða Guðrúnar, undir yfirskriftinni „Skýr stefna – Sterkara Ísland” snerist meira um hefðbundið skítkast út í núverandi verkstjórn, og sérstaklega Samfylkinguna, en nýja stefnu eða ferska vinda. Hún var því hvorki skýr né sterk. Frasar um frasastjórnmál og slagorðapólitík, ásakanir um að allt gott sem núverandi stjórn sé að gera séu verkefni sem síðasta ríkisstjórn hafi ýtt af stað og allt slæmt sem hent hafi samfélagið þá áratugi sem Sjálfstæðisflokkurinn stýrði landinu hafi í raun orðið til á síðustu 10-11 mánuðum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: