- Advertisement -

Fúsi hlýtur góðar viðtökur

Fúsi, nýjasta kvikmynd Dags Kára (Nói Albínói, The Good Heart) var heimsfrumsýnd á Berlinale kvikmyndahátíðinni í Berlín í byrjun vikunnar og var vel tekið af áhorfendum sem gagnrýnendum. Fúsi eða Virgin Mountain eins og hún nefnist á ensku, er hluti af  Berlinale Special Gala, sem samanstendur af myndum sem eru sérstaklega valdar af Dieter Kosslick hátíðarstjóra. Kosslick kynnti myndina sérstaklega fyrir heimsfrumsýninguna og heilsaði upp á Dag Kára og íslensku sendinefndina.

Á vef Kvikmyndasafns Íslands segir að í lok sýningar hafi aðstandendur myndarinnar fengið dynjandi lófatak og var Dagur Kári hylltur af frumsýningargestum. Var hann kallaður upp á svið ásamt Baltasar Kormáki og Agnesi Johansen framleiðendum myndarinnar. Að lokum var Gunnar Jónsson aðalleikari myndarinnar kallaður upp á svið og sérstaklega hylltur enda frumsýningargestir auðsjáanlega sérlega ánægðir með frammistöðu hans. Einnig voru viðstaddir sýninguna danskir meðframleiðendur myndarinnar, Bo Ehrhardt og Mikkel Jersin, ásamt sendiherra Íslands í Þýskalandi, Gunnari Snorra Gunnarssyni.

Fúsi hefur nú þegar verið seld til eftirtalinna landa: Þýskalands, Frakklands, Belgíu, Hollands, Lúxemborg og Brasilíu. Væntir franska dreifingarfyrirtækið BAC að fleiri tilboð muni berast í kjölfar frumsýningarinnar.

Fúsi segir frá titilpersónunni Fúsa, sem er liðlega fertugur og býr einn með móður sinni. Líf hans er í afar föstum skorðum og lítið sem kemur á óvart.  Hann minnir á unga sem hefur komið sér þægilega fyrir í hreiðrinu og hefur enn ekki haft kjark til að hefja sig til flugs. Þegar ung stúlka og kona á hans reki koma óvænt inn í líf hans, fer allt úr  skorðum og hann þarf að takast á við ýmislegt í fyrsta sinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Dagur Kári leikstýrir og skrifar handritið að Fúsa, sem er framleidd af þeim Baltasar Kormáki og Agnesi Johansen fyrir framleiðslufyrirtækið Sögn. Með aðalhlutverk fara Gunnar Jónsson og Ilmur Kristjánsdóttir. Tónlist myndarinnar er samin af slowblow, hljómsveit sem samanstendur af Degi Kára og Orra Jónssyni. Meðframleiðslufyrirtæki er hið danska Nimbus Film (sjónvarpsþáttaröðin Broen og kvikmyndirnar Festen, Mifune‘s sidste sang og Submarino).

Fúsi verður frumsýnd hér á landi þann 20. mars næstkomandi í Smárabíói, Háskólabíói og Laugarásbíói.

Sjá nánar á vef Kvikmyndasafnsins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: