- Advertisement -

Galdrasett og galdradót innkallað

,,Galdrasett Einars Mikaelsʻʻ og ,,Galdradót Einars Mikaels“ hefur verið innkallað þar sem vörurnar innihalda smáhluti sem geta fests í koki og þar með valdið köfnunarhættu hjá börnum. Vörurnar eru því ekki ætlaðar börnum yngri en þriggja ára en slíka viðvörun vantar á umbúðir varanna. Þá vantar einnig CE merkingar á umbúðirnar.

,,Galdrasett Einars Mikaelsʻʻ er ekki lengur fáanlegt en ,,Galdradót Einars Mikaelsʻʻ hefur verið tekið úr sölu og hefur Neytendastofa bannað alla sölu og afhendingu þess en báðar vörurnar voru til sölu í verslunum Hagkaupa.

Á vef Neyteyndastofu segir að Neytendastofa vilji ítreka að öll leikföng, sem markaðssett eru hér á landi, eigi að vera CE merkt. CE merkið er staðfesting á því að vara sé í samræmi við allar kröfur sem gerðar eru til hennar í lögum, reglugerðum og stöðlum. Með því að CE merkja vöruna staðfestir framleiðandinn að hann hafi uppfyllt allar viðeigandi lagakröfur, s.s. um öryggi, heilsu og umhverfi.

Sjá frétt á vef NS.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: