- Advertisement -

Gjörningur eða glæpur?

Sif Sigmarsdóttir skrifar:

Margt bendir til þess að þrengt sé að borgaralegum réttindum víða á Vesturlöndum.

Fyrir rétt rúmum tuttugu árum speglaði ég mig í íslensku listaverki í London. Talið er að tvær milljónir gesta hafi heimsótt fræga sýningu Ólafs Elíassonar í Tate nýlistasafninu veturinn 2003-2004 og baðað sig í geislum flennistórrar sólar sem lýsti upp steinsteypt salarkynni fyrrum rafstöðvarinnar. En þótt sólin hafi verið stjarna sýningarinnar var það óvenjuleg hegðun safngesta sem markaði spor í listasöguna.

Þegar ég gekk inn á sýninguna blöstu við mér listunnendur sem lágu eins og hráviði um gólf salarins svo að þeir líktust helst gestum á baðströnd. Það var þó ekki sólbrúnka sem þeir voru á höttunum eftir. Í lofti salarins var spegill. „Ég hafði séð fyrir mér að fólk myndi líta upp,“ sagði Ólafur um háttalag safngesta í viðtali við breska blaðið Guardian. „En þess í stað lagðist það niður, veltist um og veifaði.“

En þótt sumir hefðu látið sér nægja að „veltast um og veifa“ var framlag annarra öllu ígrundaðra. Einn gestur mætti með uppblásinn bát. Fólk gerði jóga undir speglunum og sértrúarsöfnuður hélt þar dómsdagssamkomu.

Sú hegðun safngesta sem vakti þó hvað mesta athygli var þegar þáverandi Bandaríkjaforseti, George W. Bush, kom í opinbera heimsókn til Bretlands og hópur fólks raðaði sér á gólfið svo líkamar þeirra mynduðu í speglinum setninguna: „Farðu heim, Bush“. (Sýningin stóð yfir á tímum Íraksstríðsins og naut forsetinn lítillar hylli í London.)

Trump og Epstein

Donald Trump, núverandi forseti Bandaríkjanna, hélt í opinbera heimsókn til Bretlands í vikunni. Var um að ræða aðra heimsókn Trumps til landsins af þessu tagi en aldrei hafa Bretar boðið Bandaríkjaforseta tvisvar í slíka heimsókn.

Þótt bresk stjórnvöld með liðsinni konungsfjölskyldunnar hafi lagt kapp á að taka vel á móti forsetanum – (svo vel að mörgum þótti nóg um íburðinn og sýndarmennskuna ) – voru aðrir sem nýttu lýðræðislegan rétt sinn til að mótmæla komu hans.

Athygli vakti þegar hópur mótmælenda varpaði ljósmynd af Donald Trump í félagsskap dæmds kynferðisafbrotamanns, Jeffrey Epstein, á Windsor kastala. Ólíkt safngestum, sem spegluðu sig í verki Ólafs Elíassonar fyrir tveimur áratugum til að mótmæla Bush, var fólkið sem stóð fyrir gjörningnum í Windsor hins vegar handtekið.

Ráðlegging vikunnar

Dagblöð eru að jafnaði stútfull af vel meinandi ráðleggingum. Ekki borða unnar matvörur. Taktu tíu þúsund skref á dag. Ef þú ert miðaldra, lyftu lóðum.

Óvenjulegt heilsubótarráð blasti við mér í dagblaðinu The Times nýverið.

Vísindamenn í Boston hafa sýnt fram á að fólk, sem hangir í símanum á klósettinu, er langtum líklegra til að þjást af gyllinæð en aðrir. Snjallsíminn er meira að segja stærri áhættuþáttur þegar kemur að kvillanum en óhóflegur rembingur. Grunur hafði lengi leikið á orsakasamhengi milli snjallsímans og gyllinæðar en fyrst nú staðfesta vísindin þann grun.

Þar höfum við það.

Ég vona að þú sért ekki að lesa þetta á dollunni.

Góða helgi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: