- Advertisement -

Heimilin verða af hundruðum milljóna

Heimilin í landinu verða af hundruðum milljónum króna vegna vaxtamunar á innlánum og útlánum. Í kjölfar stýrivaxtalækknur í nóvember lækkuðu útlán stóru viðskiptabankanna ekki eins mikið og efni standa til og innlán skila nú minni ávinningi.

Á pistli sínum á heimasíðu Verzlunarmannafélags Reykjavíkur segir Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, að stóru viðskiptabankarnir þrír hafi nú allir lækkað vexti sína í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að lækka stýrivexti í byrjun nóvember og sé það  gott og blessað.

Hún segir að það veki hins vegar óneitanlega athygli að innláns- og útlánsvextir taku ekki sömu breytingum. Þannig lækkuðu innlánsvextir um 0,3% stig hjá Arion banka en útlánsvextir aðeins um 0,2% stig. Hið sama er uppá teningnum hjá Landsbankanum, þar lækkuðu innlánsvextir um 0,25% stig en útlánsvextir aðeins um 0,15% stig. Íslandsbanki lækkaði vexti á innlánum sínum um 0,3% stig og útlánsvexti um 0,25% stig.

Vaxtamunur eykst um:
Arion banki  0,10%
Landsbankinn 0,10%
Íslandsbanki 0,05%
Þú gætir haft áhuga á þessum

Hagfræðingur VR hefur reiknað út áhrifin af þessum breytingum og skv þeim aukast tekjur bankanna um tæplega milljarð króna vegna þessara breytinga, gróflega áætlað. Seðlabankinn áætlar að um þriðjungur inn- og útlána bankanna séu til heimilanna í landinu sem verða því af hundruðum milljóna króna.

Vextir bankanna hafa tekið breytingum þó stýrivextir Seðlabankans hafi haldist óbreyttir. Vaxtamunur Arion banka hefur til að mynda aukist um 0,20% bara á árinu 2014, hjá Landsbankanum og Íslandsbanka hefur hann aukist um 0,15%.

Ólafía segir: Við hljótum að spyrja á hvaða forsendum bankarnir tóku þessa ákvörðun? Það er erfitt að sjá að það hafi verið í þágu okkar viðskiptavinanna. Fyrirheit um aukinn kaupmátt launafólks verða að engu þegar bankarnir geta með einu pennastriki tekið ávinning vaxtalækkana til sín á þennan hátt.

Sjá nánar á síðu VR.

 

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: