- Advertisement -

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands verðlaunað

Norrænu lýðheilsuverðlaunin voru afhent nýlega og var það Íþrótta og ólympíusamband Íslands sem fékk verðlaunin að þessu sinni. Verðlaunin fékk sambandið fyrir að stuðla með starfi sínu að heilbrigðum lífsstíl almennings og þar með bættri lýðheilsu.

Norræna ráðherranefndin og Norræni lýðheilsuháskólinn hafa um árabil staðið fyrir veitingu Norrænu lýðheilsuverðlaunanna til að vekja athygli á mikilvægu starfi í þágu heilbrigðis og vellíðunar og eru þau ýmist veitt einstaklingi, samtökum eða stofnunum sem lagt hafa mikið af mörkum til bættrar lýðheilsu á Norðurlöndunum.

Í rökstuðningi fyrir verðlaunaveitingunni segir: „Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur í meira en tvo áratugi haft mikil áhrif á lýðheilsu á Íslandi með því að leggja áherslu á að almenningur lifi heilbrigðu lífi. ÍSÍ hefur haft frumkvæði að áætlunum um hreyfingu, lífsstíl og vellíðan almennings. Áætlanirnar hafa haft mikil áhrif á fólk á öllum aldri og skilað góðum árangri hjá áhættuhópum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er verðugur handhafi Norrænu lýðheilsuverðlaunanna 2014 fyrir skilvirkt og kerfisbundið starf að lýðheilsumálum.“

Sjá frétt á vef Velferðarráðuneytisins.

 

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: