
Ummæli Jóns Gnarr, í þætti Gísla Marteins á föstudagskvöldið, særðu marga Grindvíkinga. Þeim fannst þingmaðurinn tala af léttúð um stöðu Grindvíkinga og Grindavíkur. Í framhaldi af þessu skrifaði Jón Gnarr:
Mikið finnst mér leiðinlegt að heyra þetta. Það var ekki ætlun mín að gera gera lítið úr eða sýna fólki vanvirðingu, heldur þvert á móti. Mér var efst í huga hvað við megum okkur oft lítils gagnvart ógnarkröftum náttúruaflanna og hvernig það að upplifa jarðhræringar getur kippt undan okkur fótunum og haft djúpstæð áhrif á okkur. Þessi hjón sem ég vísa til hitti ég ásamt hópi af Grindvíkingum síðasta sumar. Ég hitti þau fyrir utan bensínstöðina á Blönduósi. Maðurinn lýsti þessu svona fyrir mér, hvernig húsið þeirra hefði færst til. Það var augljóst að þetta hafði haft mikil áhrif á hann. Og hann sagði þetta, að hann myndi aldrei vilja fara aftur heim til Grindavíkur. Ég var ekki að búa þetta til.
Ég vildi sýna meðlíðan og samkennd og skilning á þeirri áfallastreituröskun sem svona getur fylgt. Ég var sjö ára þegar gaus í Eyjum. Pabbi var lögreglumaður og tók þátt í björgunarstarfinu nótt og dag. Að sjá þetta í sjónvarpinu og vita af pabba þarna var óhugnanlegt.
Guð blessi Grindavík.
Ég vann í Svartsengi við lóðaframkvæmdir sem ungur maður og kom þá daglega til Grindavíkur Ég hlóð meðal annars hraunhleðslurnar sem stóðu við veginn til hitaveitunnar. Ég heimsótti Grindavík síðasta vetur og sá þá að þessir garðar mínir voru allir hrundir til grunna. Ég heimsótti bæinn og átti fundi með fjölda fólks og heimsótti fyrirtæki og á ekkert nema hlýju til Grindavíkur og allra Grindvíkinga. Og ég held að allir Íslendingar geri það.
Ég biðst innilegrar afsökunar hafi orð mín verið óvarlega sögð. Ég skil að þetta er viðkvæmt, fólk er stolt og finnst lítið gert úr sér. ,,Ekki er að spauga með íslenskt sjómannsblóð, ólgandi sem hafið og eldfjallaglóð.“
Fyrirgefið mér kæru vinir ef ég hef sært ykkur, það var ekki ætlunin. Ég ber mikla virðingu fyrir dirfsku, æðruleysi og þrautseigju Grindvíkinga og hef fulla trú á því að við náum saman, með tímanum, að endurreisa bæinn og vinna okkur útúr þessu, ekki bara efnahagslega heldur tilfinningalega líka. Guð blessi Grindavík.