- Advertisement -

LYGAR VEGNA ATKVÆÐAGREIÐSLU

Birgir Dýrfjörð skrifar:

„Kristín Vala Ragnarsdóttir er verkfræðingur og virtur kennari við Háskólann í Bristol í tæp 20 ár.  Hún  skrifar grein í Vísir.is 17. 8.´26 Þar sýnir hún eftirfarandi dæmi um lygar, sem illa upplýst og óvandað fólk heldur á lofti vegna komandi kosninga. Hún tekur fram að þau dæmi eru alls ekki tæmandi upptalning. 

Evrópuher verður stofnaður.  Þetta er lygi. Það er ekki til neinn Evrópusambandsher og engin áform eru um að stofna slíkan her.

Fullveldið tapast með aðild að ESB. Þetta er lygi. Tuttugu og sjö ESB þjóðir hafa ekki misst fullveldið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ekki er hægt að semja um neinn skapaðan hlut við ESB.  Þetta er lygi.

Glórulaust að sækja um aðild að ESB nema maður vilji fara inn. Þetta er lygi.

Ef svarið er já 29. ágúst — verður sótt um til ESB að hefja aðildarviðræður í haust  – – . Að þeim loknum verður samningurinn lagður undir AÐRA ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU.

Ekki er hægt að semja um neinn skapaðan hlut við ESB.  Þetta er lygi. Margar þjóðir sem eru aðilar að ESB hafa fengið aðlögun að sínum aðstæðum, t.d. líkt og Finnland og Svíþjóð í sambandi við landbúnað á norðurslóðum (Grein 142).

Ísland verður þakið vindmyllum ef við göngum í ESB. Þetta er lygi. Nú þegar eru yfir 40 staðir á landinu í athugun um uppsetningu vindorkugarða.

Það er afar dýrt fyrir Ísland að vera í ESB. Þetta er lygi. Ísland borgar nú þegar fyrir aðild að EES – og sú greiðsla leggst niður ef gengið verður í ESB.

Dýrasta verkefni allra tíma er að skoða tóman pakka. Þetta er enn ein lygin. „Pakkinn“ er ekki tómur. Semja má um mörg atriði t.d. um landbúnað,  sjávarútveg,  náttúruvernd og fleira. 

Náist það ekki svo vel líki þá fellir þjóðin bara samninginn.

Það er því ekkert að óttast að kjósa JÁ.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: