- Advertisement -

Óttinn býr í hverju prentuðu orði

Hann sýnir yfirlæti, hroka og gerir sig breiðan. Kann engin mörk í almennri umræðu. Veður yfir allt og alla eins og svín í flagi.

Axel Jón Ellenarson.

Sá þessa kröftugu Facebookfærslu eftir Axel Jón Ellenarson:

„Það sem skelfir í alvörunni er að öfgahægrið og öfgavinstrið sem risið hafa upp með klassískri aðskilnaðarstefnu, alið á ýmsum ógnum og hatri á sjálfsögðum mannréttindum nái völdum hér á landi. Þau eru nú þegar komin á þjóðþingið. Það hefur alltaf kostað mikla baráttu, sársauka, fórnir og mannslíf að öðlast mannréttindi eins og að fá að elska og vera elskuð, að lifa eins og hvert og eitt mannsbarn þráir og óskar sér. Fá að vera frjáls sem okkur þykir ekki nema sjálfsagt og stingum hugsunarlaust upp í okkur einni með öllu nema hráum, mikið remúlaði, og ís á eftir gapandi út í loftið. Ein í krónulandinu hinu góða.

Þegar málgagninu er flett blasa rangfærslurnar og lygarnar við. Óttinn býr í hverju prentuðu orði um málefnið á síðum blaðsins, í rafrænum pistlum um allt, í sjónvarpi og hlaðvörpum þar sem skálað er fyrir sjálfum sér og hlegið digurbarkalegum hlátri. Allir svo sjálfumglaðir og hressir.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Ég reyndar hjó eftir því að Lilja lofar að redda þessu komist hún til valda, alveg eins og aðrir hafa lofað áður því sama í verðtryggða krónulandinu.

Ímyndið ykkur hve Silfrið hefði verið betra ef einum formanni, birtingarmynd alls þess sem óhuggulegt er við stjórnmálamann þegar litið er til ferilsins, hefði verið meinað að koma sökum þess hve hranalegur og óbilgjarn hann er í framkomu. Ofbeldinu hafnað. Freku karlarnir myndu láta í sér heyra. Hann sýnir yfirlæti, hroka og gerir sig breiðan. Kann engin mörk í almennri umræðu. Veður yfir allt og alla eins og svín í flagi. Fleiri sýndu sínar slæmu pólitísku hliðar í Silfrinu með útúrsnúningum, heimtufrekju og óheilindum, júju.

Það skelfir mig að valdafólk í samfélaginu skuli ljúga að þjóðinni í opinberri umræðu. Það er líka eins og sannleikann skorti í hjarta þessa fólks sem lýgur blákalt um staðreyndir. Staðreyndir virka ekki á þetta ofstæki, umburðarlyndi ekki heldur. Ekki hef ég séð vott af hlýju, heldur yfirlæti, pirringi, vandlæti og hroka. Besservissar.

Ég held að skaðinn verði mikill um ókomna áratugi ef þetta virðulega fólk, sem nú setur sig upp á móti því að þjóðin fái að sjá aðildarsamning við Evrópusambandið, fær að ráða framtíð þjóðarinnar.

Fólkið sem vill ekki lofa þjóðinni að njóta…

Ef nei verður ofan á munum við þurfa að þola lygina um krónuna og verðum áfram múruð inn í krónulandið, landi fákeppninnar, og að háir húsnæðisvextir séu af hinu góða o.s.frv. um ókomin ár. Ég reyndar hjó eftir því að Lilja lofar að redda þessu komist hún til valda, alveg eins og aðrir hafa lofað áður því sama í verðtryggða krónulandinu. Hún vill ekki kosta til tveimur milljörðum króna í vinnuna við að losna kannski við þessa útjöskuðu örmynt, á sama tíma vill hún Lilja kosta til hundruðum milljarða króna við að halda henni á floti. Svona er lífið einkennilegt.

Fólkið sem vill ekki lofa þjóðinni að njóta þess ábata sem aðild gæti veitt henni er að kljúfa þjóðina. Þessi öfl, þetta fólk, ætlar áfram halda þjóðinni í krónulandinu – í vistabandinu góða.

Að segja nei við inngöngu í Evrópusambandið er alveg gild afstaða, en að segja nei núna áður en þjóðin fær að sjá hvað henni stendur raunverulega til boða er ekki afstaða til aðildar. Það er afstaða gegn því að þjóðin fái að ákveða framtíð sína á upplýstum grundvelli.

Auðvitað vel ég nú að gerður verði aðildarsamningur sem síðan verður borinn undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Spennandi tímar framundan. Vistabandið sem batt þjóðina í álög, mannana verk, losnar kannski endanlega fyrr en síðar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: