- Advertisement -

Nýjar fræðslumyndir fyrir brotaþola

Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum frumsýndi í gær myndirnar Leiðin áfram. Þá var sömuleiðis kynnt nýtt fræðsluefni fyrir réttarvörslukerfið. Í fræðslumyndunum Leiðin áfram er farið í gegnum ferlið innan réttarvörslukerfisins eftir að kynferðisbrot hefur átt sér stað.

Markmið Vitundarvakningarinnar með gerð myndanna er að veita upplýsingar sem auðvelda brotaþolum og aðstandendum þeirra fyrstu skrefin til þess að sækja sér aðstoð. Nýja fræðsluritið Kynferðisofbeldi gegn börnum,  Málsmeðferð réttarkerfisins og réttarvernd barna er gefið út af Vitundarvakningunni í samvinnu við Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni (RÁS). Því hefur verið fylgt eftir með námskeiðum á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík.

Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér fræðsluefnið eru beðnir um að hafa samband við verkefnisstjórn Vitundarvakningar.

Sjá nánar á vef Menntamálaráðuneytis.

 

 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: