- Advertisement -

Rammaáætlunin á vefnum

Nýr vefur rammaáætlunar hefur verið opnaður á nýju léni, www.ramma.is og leysir vefurinn leysir af hólmi eldri vef.

Verkefnisstjórn rammaáætlunar, sem skipuð er af umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur umsjón með vefnum. Segir í tilkynningu að þar sé lögð áhersla á ítarlegar og aðgengilegar upplýsingar um vinnu sem stendur yfir við rammaáætlun.

Vefurinn er helsta tæki verkefnisstjórnar rammaáætlunar til að miðla upplýsingum um starf sitt og stöðu áætlunarinnar. Sögu rammaáætlunar eru gerð skil, svo og þeim hugmyndum og fræðum sem að baki liggja. Auk þess er vefurinn einn helsti samráðsvettvangur verkefnisstjórnar. Þá er unnið að gerð gagnagrunns með gögnum sem orðið hafa til í vinnu við núverandi og fyrri áfanga rammaáætlunar og verða þau gerð aðgengileg almenningi. Gagnagrunnurinn verður hluti af vefsíðunni í náinni framtíð.

Nýr vefur Rammaáætlunar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: