- Advertisement -

Ríkið hefur niðurgreitt stóra pallbíla fyrir um milljarð

Morgunblaðið: Íslenska ríkið niðurgreiðir dýra pallbíla um allt að fimm milljónir króna. Í Mogga dagsins er þetta meðal annars að finna:

„Það sem er verra er að okkar skattpeningar eru nýttir til að niðurgreiða pallbíla til einkanota. Styrkur ríkisins til þessara pallbíla fer að nálgast milljarð,“ segir Pétur Kristján Þorgrímsson og vísar til þess að rafbílastyrkurinn nemi 33% af verði bílsins án virðisaukaskatts en með álagningu innflytjanda. Í fyrra gat styrkurinn orðið 5 milljónir að hámarki, en á þessu ári er hámarksstyrkur helmingi lægri, eða 2,5 milljónir.“

Í ágúst í fyrra var einhverstaðar viðtal við Bjarna Ben sem hafði keypt sér stóran GMC og æki á honum víða um land.

Kristján Hreinsson setti saman þessa vísu af því tilefni:

Stoltur pabbastrákurinn

með stóran bíl og fínan,

Bjarni keypti bílinn sinn,

bara til að sýn’ann.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: