- Advertisement -

Ríkisstjórnir borgi kvennahreyfingar

Jafnrétti „Norrænu ríkisstjórnirnar ættu að fjármagna félagasamtök kvennahreyfingarinnar og stuðla að aukinni norrænni samvinnu og samstöðu, a.m.k. upp að því marki sem að starf annarra félagasamtaka er styrkt, svo að femínískar hugmyndir geti haft raunáhrif og fullu jafnrétti sé náð í samfélagi okkar.“

Þetta segir meðal annars í kröfum Nordisk Forum, sem haldin var í Malmö í fyrri viku.

Einnig var samþyktk að krefjast þess að fjárhagsáætlanir ríkis og sveitarfélaga ættu að byggjast á aðferðafræði kynjaðar fjárlagagerðar, og kynjasjónarmið ættu að grundvalla fjárhagsákvarðanir og söfnun tölfræðiupplýsinga. Fjárlög ættu að hafa jafnrétti að leiðarljósi og jafnréttissjónarmið ættu að vera mikilvæg ríkisstofnunum í starfi sínu við að ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Og að konur sem flytja til Norðurlandanna ásamt fjölskyldum sínum ætti að vera veitt dvalarleyfi í eigin nafni svo dvalarleyfi þeirra séu ekki bundin karlmönnum. Þolendum ofbeldis skal ekki vera vísað úr landi. Konum sem seldar hafa verið mansali ætti að vera veitt vernd og aðstoð þegar þær geta eða vilja bera vitni fyrir rétti.

Og að norrænu sveitarfélögin, samtök atvinnurekenda og stéttarfélög ættu að starfa að því að skapa atvinnulíf sem tekur tillit til fjölskyldulífs og raunvinnuaðstaðna, og skapa mannsæmandi starfskjör. Réttur til að vinna fullt starf ætti að vera tryggður með lagasetningu eða samþykktum í löndum þar sem algengt er að konur neyðast til að vinna í hlutastarfi. Fylgjast ætti vel með og vinna reglugerðir til að koma í veg fyrir misnotkun á starfsmönnum í ótryggum starfsgreinum þar sem tímabundnar ráðningar og lausráðningar eru algengar.

Og að norræn yfirvöld ættu að starfa að því að konur taki fullan þátt í umhverfisverndarstarfi, sem aktífistar, frumkvöðlar, skipuleggjendur, kennarar, leiðtogar og sendiherrar fyrir sjálfbæra þróun. Styrkir sem veittir eru til umhverfismála ættu alltaf, þar sem þörf er á, að hafa kynjasjónarmið að leiðarljósi.

Jafnréttisráðherrum Norðurlandanna, þ.á.m. Eygló Harðardóttir, voru formlega afhentar lokaniðurstöður jafnréttisráðstefnunnar Nordiskt Forum á lokahátíð ráðstefnunnar sunnudaginn 15. júní.

Í þessu lokaskjali eru ráðherrarnir hvattir til að virða sáttmálann sem ríkisstjórnir Norðurlandanna skrifuðu undir á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking 1995. Þar lofuðu ríkisstjórnir landanna að virða kynjasjónarmið í öllu sínu starfi og ákvörðunum.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: