- Advertisement -

Selena Gomez og The Weeknd njóta lífsins saman

Fyrir nokkrum mánuðum dúkkaði upp þetta flotta par sem Selena og The Weeknd eru og þau eru dugleg að njóta lífsins saman eins og þessar myndir sýna.

Fyrir nokkrum mánuðum fóru að berast fregnir af því að nýtt stjörnupar hafi litið dagsins ljós þegar myndir náðust af þeim Selena Gomez og The Weeknd í faðmlögum fyrir utan veitingastað. Upp úr þessum fregnum varð frekar mikið fjaðrafok þar sem illindi sköpuðust á milli Selenu og fyrrverandi kærustu The Weeknd, Bellu Hadid. Selena og Bella höfðu verið í sama vinkonuhóp, nánar tiltekið fylgihópnum hennr Taylor Swift, og þegar Bella frétti þetta hætti hún að fylgja Selenu á Instagram sem svaraði í sömu mynt og þykir það senda ákveðin skilaboð. Fyrrverandi kærasti Selenu, Justin Bieber, hefur einnig haft sitt að segja um þessa ráðahaga en eins og kunnugt er áttu þau Selena og Justin í stormasömu sambandi í nokkurn tíma sem einkenndist af sorg, gleði, tíma saman og sundur. Þrátt fyrir ýmis konar mótbárur héldu þau sínu striki og virðast vera mjög svo hamingjusöm miðað við þessar myndir sem voru teknar nýlega af þeim.