- Advertisement -

Stjórnvöld tryggi samkeppnishæfni Elkem – ábyrgðin er þeirra

Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA skrifar:

Verndartollar og aðrar viðskiptahindranir Evrópusambandsins hafa þrengt verulega að útflutningi á sama tíma og orkukostnaður, flutningskostnaður og annar rekstrarkostnaður hafa aukist.

Fréttirnar um að framtíð Elkem á Íslandi sé nú til skoðunar eru afar alvarlegar. Hér er ekki aðeins um að ræða eitt fyrirtæki heldur einn mikilvægasta vinnustað á Vesturlandi sem hefur skapað verðmæti, gjaldeyristekjur og vel launuð störf allt frá árinu 1979.

Við Akurnesingar höfum á undanförnum árum þurft að þola hvert áfallið á fætur öðru í atvinnumálum. Við vitum því betur en flestir hvaða afleiðingar það hefur þegar góð störf tapast. Hvert starf sem hverfur hefur áhrif langt út fyrir veggi fyrirtækisins – á fjölskyldur, verslun, þjónustu og allt samfélagið.

Við megum einfaldlega ekki við fleiri höggum.

Við megum einfaldlega ekki horfa upp á enn eitt stórt áfallið í atvinnulífinu.

Staðan hjá Elkem er ekki til komin vegna þess að starfsfólkið eða fyrirtækið hafi brugðist. Fyrirtækið hefur um langt skeið bent á versnandi samkeppnisskilyrði. Verndartollar og aðrar viðskiptahindranir Evrópusambandsins hafa þrengt verulega að útflutningi á sama tíma og orkukostnaður, flutningskostnaður og annar rekstrarkostnaður hafa aukist.

Þetta er ekki eingöngu mál Elkem. Þetta er þjóðhagsmál.

Það hlýtur að vera ein af mikilvægustu skyldum stjórnvalda að verja fyrirtæki sem skapa þjóðinni raunverulegar gjaldeyristekjur og standa undir verðmætasköpun og atvinnu um land allt. Það getur einfaldlega ekki verið stefna stjórnvalda að samkeppnishæfni íslenskra útflutningsfyrirtækja versni svo mikið að atvinnuöryggi þúsunda starfsmanna í orkufrekum iðnaði sé sett í hættu.

Orkufrekur iðnaður hefur um áratugaskeið verið ein af burðarstoðum íslensks útflutnings. Þar starfa þúsundir Íslendinga við vel launuð störf sem skapa gríðarleg verðmæti fyrir þjóðarbúið. Þess vegna verða stjórnvöld að beita öllum þeim úrræðum sem þau hafa til að tryggja samkeppnishæfni greinarinnar, hvort sem það snýr að orkumálum, innlendum rekstrarskilyrðum eða því að gæta hagsmuna Íslands gagnvart viðskiptahindrunum á erlendum mörkuðum.

Við sem búum á Akranesi og í nágrannasveitarfélögunum vitum hvað er í húfi. Við megum einfaldlega ekki horfa upp á enn eitt stórt áfallið í atvinnulífinu. Nú er kominn tími til að stjórnvöld sýni í verki að þau ætli að standa vörð um íslensk störf, íslenskan útflutning og samkeppnishæfni þeirra fyrirtækja sem skapa verðmætin sem íslenskt samfélag byggir á.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: