- Advertisement -

Verðbólga ekki verið lægri í 16 ár

Verðbólga á ársgrundvelli mælist nú 1% og hefur ekki verið lægri síðan haustið 1998. Verðlag lækkaði um 0,5% í nóvember. Lækkun verðlags má að mestu rekja til lækkunar flugfargjalda og eldsneytis. Sé húsnæði undanskilið úr vísitölunni hefur verðlag hjaðnað um 0,3% undanfarið ár.

Á síðu ASÍ má sjá að mest áhrif til lækkunar á verðlagi í nóvember hefur lækkun á flugfargjöldum um 17,3% frá fyrra mánuði sem hefur 0,25% áhrif til lækkunar á verðlagi. Þá lækkar verð á eldsneyti um 2,6% (-0,1% vísitöluáhrif), mat- og drykkjarvörur lækka um 0,5% (-0,07% vísitöluáhrif) en flestir matvöruliðir lækka frá fyrra mánuði að fiski og kornvörum undanskildum. Raftæki og sjónvörp lækka sömuleiðis um ríflega 3% frá fyrra mánuði (vísitöluáhrif samtals -0,09%).Húsnæðisliður vísitölunnar, sem leitt hefur hækkun verðlags undanfarið ár, lækkar nokkuð óvænt í mánuðinum um 0,1% (-0,04% vísitöluáhrif) sem skýrist af lítilsháttar lækkun á markaðsverði húsnæðis.

Föt og skór er eini liður vísitölunnar sem sker sig úr að þessu sinni og hækkar um 1,1% frá fyrra mánuði ( 0,05% vísitöluáhrif).

Sjá nánar á vef ASÍ.

 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: