- Advertisement -

Börnin gubba í skólabílnum

- og þau kvía fyrir akstrinum og eru lengi að jafna sig, allt vegna þess hversu vegurinn er illa farinn.

Íbúar við Vatnsnesveg, þjóðveg 711, eru orðnir langþreyttir á seinagangi og skilningsleysi stjórnvalda. Þann 10. okt. héldu Vatnsnesingar íbúafund vegna ástandsins, var hann vel sóttur og umræðan málefnaleg.

Þrátt fyrir marg ítrekaðar ábendingar síðustu mánaða er svar Vegagerðarinnar og stjórnvalda að lækka hámarkshraðann niður í 30 km á klst. á völdum köflum þar sem vegurinn er nánast ófær.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt: „Foreldrar eru orðnir mjög uggandi um börn sín í skólaakstri á þessum vegi og eru mörg dæmi um að börn kasti upp á leiðinni. Eins eru börnin kvíðin fyrir ferðunum og eru lengi að jafna sig í skóla og heima í lok ferðar og eins hefur ferðatíminn lengst til muna. Þetta er að sjálfsögðu algerlega óviðunandi og má segja að þetta jaðri við barnaverndarmál.“

Sjá nánar á trolli.is.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: