- Advertisement -

Segir Bjarna Ben og Sigmund Davíð níðast á lífeyrisþegum

Samfélag „Þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben. eru ekki að bæta kjör lífeyrisþega. Þeir eru að níðast á þeim,“ þannig skrifar Björgvin Guðmundsson, viðskiptafræðingur og ötull baráttumaður fyrir bættum kjörum eldri borgara, í Fréttablaðið í dag.

SDG BBHann finnur mjög að fullyrðingum að almannatryggingar hækki nú meir en nokkru sinni á lýðveldistímanum. Björgvin færir rök fyrir máli sínu.

„Almannatryggingar voru efldar meira 1946 en nú. Og lífeyrir hækkaði um tæp 20% í ráðherratíð Jóhönnu Sigurðardóttur um áramótin 2008/2009. Viðreisnarstjórnin stórefldi einnig almannatryggingar. Það stenst því engan veginn, að ríkisstjórnin sé nú að gera betur en áður. Það er þveröfugt. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur stóð sig einnig betur á krepputímanum gagnvart lífeyrisþegum, þar eð lífeyrir þeirra sem voru á strípuðum bótum var þá ekkert skertur. Hann hélst óbreyttur þó aðrar bætur lækkuðu. Þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben. eru ekki að bæta kjör lífeyrisþega. Þeir eru að níðast á þeim.“

Björgvin fer aftur til valdatíðar Ólafs Thors og segir að hann hafi viljað hafa almannatryggingar á Íslandi í fremstu röð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Ólafur Thors vildi efla almannatryggingar hér. Bjarni Benediktsson vill halda þeim niðri. Það eru alger öfugmæli, þegar Bjarni Benediktsson segir, að núverandi ríkisstjórn sé að auka lífeyri aldraðra og öryrkja meira en nokkru sinni áður á lýðveldistímanum. Ríkisstjórnin er ekki að efla almannatryggingar hér neitt. Hún heldur ekki einu sinni í horfinu. Laun hækkuðu hér um 14-20% á árinu 2015. Launin hækkuðu frá 1. maí 2015. Lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkar ekkert í átta mánuði og aðeins um 9,7% frá 1. janúar 2016. Lífeyrir hækkar miklu minna en laun og átta mánuðum seinna en laun. Það er því verið að brjóta lagaákvæði um að lífeyrir eigi að hækka í samræmi við launaþróun og það er verið að hlunnfara lífeyrisþega með því að draga þá á hækkun í átta mánuði.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: