Stjórn Ísfélagsins í Vestmannaeyjum hefur ákveðið að borga eigendum sínum tvo millarða í arð. Sem er fimmtungur þess sem ríkisstjórnin stefnir að veiðigjöldin hækki að þessu sinni.
Þetta er enginn smábiti. Af þessu sést einnig að stærstu fyrirtækin eru vel aflögufær. Eflaust er gott að fjárfestarnir fái eitthvað fyrir sinn snúð. Sama á við um skuldsetta þjóðina, eiganda auðlindarinnar, og hina æpandi þörf á innviðauppbyggingu.
Fyrri ríkisstjórn skildi eftir sig himinháar skuldir, ónýta vegi víða um land, biðlista hér og biðlista þar og áfram er hægt að telja.
Lýðveldið Ísland þarf meiri peninga. Víða er þörf fyrir lagfæringar svo ekki sé talað um nýjar framkvæmdir. Til að það gangi verðum við öll að leggjast á eitt. Hvert og eitt okkar borgi eins og auraráðin lofa.
Með ákvörðuninni er stjórn Ísfélagsins að senda okkur hinum puttann.
-sme