alþingi.is:
„Allsherjar- og menntamálanefnd skipar undirnefnd til að fara yfir umsóknir um ríkisborgararétt til Alþingis. Útlendingastofnun afhenti nefndinni umsóknir, ásamt fylgigögnum, 8. desember 2025. Nefndinni hafa að þessu sinni borist umsóknir 290 umsækjenda. Enn liggja ekki fyrir umsagnir Útlendingastofnunar, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 100/1952.
Nefndin telur mikilvægt að vanda vel til verka við yfirferð umsókna og leggur áherslu á að umsækjendur fái vandaða málsmeðferð. Í ljósi fjölda umsókna sem liggja nú fyrir nefndinni og með hliðsjón af mikilvægi vandaðrar málsmeðferðar er ljóst að nefndin mun ekki ljúka vinnu við gerð frumvarps fyrir áramót. Stefnt er að því að undirnefndin ljúki yfirferð yfir umsóknir um ríkisborgararétt til Alþingis í febrúar 2026.“