Stjórnarráðið: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur úthlutað rúmlega 56 milljónum króna í rekstrarstyrki til 25 frjálsra félagasamtaka sem starfa á málefnasviði ráðuneytisins á grundvelli umsókna og og nemur heildarhækkun fjárhæðar vegna almennra styrkja 3,2%.
Markmið styrkjanna er að stuðla að opnum og frjálsum skoðanaskiptum um umhverfis- og auðlindamál og að efla almenna vitund um gildi umhverfismála. Ráðuneytið hefur veitt frjálsum félagasamtökum sem starfa að umhverfismálum rekstrarstyrki frá árinu 2000.
Umsækjendur rekstrarstyrkja ráðuneytisins þurfa að uppfylla skilyrði sem fram koma í reglum um almenna rekstrarstyrki til frjálsra félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum. Þurfa samtökin m.a. að hafa umhverfismál sem eitt af meginmarkmiðum félagsins skv. samþykktum þess og vera opin fyrir almennri aðild einstaklinga eða félagasamtaka.
