- Advertisement -

80 milljóna hagnaður hjá Sparisjóði Austurlands

Útlán jukust um hálfan milljarð.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem sjóðurinn sendi frá sér eftir aðalfund á þriðjudag. Hagnaður eftir skatta og 5% lögbundið framlag til samfélagslegra málefna er 60 milljónir króna.

Sparisjóðirnir eru skyldaðir til að veita ákveðnum hluta af hagnaði sínum til samfélagsmála og verður upphæðin í ár 4,1 milljón króna en hún hefur aldrei verið hærri. Ákvæðið var innleitt í lög árið 2012 og síðan hefur sjóðurinn veitt samtals 14 milljónum til samfélagsverkefna á Austurlandi.

Útlán hafa aukist jafnt og þétt undanfarin ár og nam aukningin í fyrra 15% eða 500 milljónum króna.

Sjá nánar hér

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: